Tilkynningar

Næsti verkáfangi

Núna er jarðvinna hafin, við erum að moka lausum jarðvegi af klöpp og að hefja færslu lagna Kópavogs út úr byggingareit. þessi vinna mun taka um 3-4 vikur mokstur á jarðvegi og 5-8 vikur færsla á lögnum. Að mokstri loknum munu sprengingar hefjast sem gæti verið eftir 4 vikur og áður en sprengingar hefjast verða settir titringsmælar á nálægustu byggingar til að mæla titring við sprengingar. Sprengingar munu byrja rólega þangað til það er búið að finna út leiðni klappar og til að takmarka bylgjuhraða sprenginga sem er krafa um að fara ekki hærra en 15 mm/s í verklýsingu. Við munum senda tilkynningu um sprengingar viku áður en þær hefjast.

Nánar →

Lok niðurrifs

Því miður náðist ekki að klára fleygun botnplötu á áætluðum tíma vegna bilana, fleygun mun því standa yfir fram að helgi og mögulega á mánudaginn 31.8. og restin af þeirri viku verður flokkun á efni, mylja steypu og burtakstur á efni. Við þökkum fyrir tillitsemina sem þið hafið sýnt.

Nánar →

Jarðvinna

Núna um mánaðarmótin ágúst/september mun jarðvinna hefjast við Fannborgarreit, fyrstu vikurnar verður unnið við að moka jarðvegi ofan af klöpp og mun það taka um 3-4 vikur, samhliða því verður unnið við færslu núverandi lagna (frárennsli, neysluvatni og rafmagnsstrengjum) út fyrir lóð. Eftir mokstur á jarðvegi munu sprengingar hefjast eins og fram kom á kynningarfundi um jarðvinnu. Áður en sprengingar hefjast munum við setja upp titringsmæla á næstu byggingar og gögnum um sprengingar verður skilað til Kópavogs daglega til upplýsingar. Stefnt er að það verði sprengt 4-6 sinnum á dag en í upphafi verða eitthvað færri sprengingar, áður en sprengt er verður flautað í mínútu til viðvörunar. Aðkomuáætlun fyrir fasa 4 verður í gildi á meðan þessar framkvæmdir eru og er myndin hér að ofan af aðkomuáætluninni.

Nánar →

Lok niðurrifs

Rif á botnplötu og sökklum með fleygun mun halda áfram til 20. ágúst þá líkur fleygun, flokkun og brottakstur á efni mun ljúka um 26. ágúst þá verður niðurrifi á Fannborgarreit formlega lokið. Við þökkum fyrir þolinmæðina sem þið hafið sýnt í þessum fasa sem er hávær.

Nánar →

Rif bílastæðaplötu

Nú höfum við hafið niðurrif á efri bílastæðaplötu framan við Fannborg 7-9, Digranesvegar 5 og Fannborgar 8, verkið mun taka um 3 vikur og er meðfylgjandi aðkomuáætlun í gildi núna.

Nánar →

Lokun bílastæðaplötu

Til stendur að loka bílastæðaplötu þann 16.7. og biðjum við eigendur bíla að fjarlægja þá fyrir þann tíma því til stendur að rífa plötuna.

Nánar →

Lokun neðri stæða

Neðri bílastæði undir bílastæðaplötu hefur verið lokað og biðjum við þá eigendur bíla sem eru inni á stæðinu að fjarlægja þá sem fyrst svo ekki þurfi að láta fjarlægja þá.

Nánar →

Fleygun botnplötu

Einhver fleygun mun verða næstu daga vegna niðurrif á botnplötu, við munum reyna að hafa fleygun í lágmarki vegna hávaða.

Nánar →

Leiðréttingar

Þar sem okkur var bent á að rangfærslur væru á ferðinni um hæðir húsa viljum við koma á framfæri að hús F4 sem verður á móti Hamraborg 10 verður 4 hæðir með inndreginni 5 hæð, hús 2d sem er hæsta húsið verður 12 hæðir og hús 2a-c sem er austast á reitnum verða 7-8 hæðir.

Nánar →

Niðurrif plötu undir húsum 4 og 6

Í vikunni munum við hefja framkvæmdir við að færa girðingar á neðri palli í samræmi við fasa 2 og miðast við að plötur og súlur undir húsum Fannborg 4 og 6 verða rifnar niður og efni fjarlægt.

Nánar →

Framkvæmdir við niðurrif hefjast í næstu viku

Í næstu viku hefjast framkvæmdir við niðurrif á efri plötu bílakjallara. Meðfylgjandi aðkomuáætlun verður í gildi á meðan framkvæmdum stendur.

Nánar →