Framkvæmdir við niðurrif hefjast í næstu viku

Í næstu viku hefjast framkvæmdir við niðurrif á efri plötu bílakjallara. Á meðan framkvæmdum stendur verður meðfylgjandi aðkomuáætlun í gildi.

Lokað verður fyrir bílastæði á plötunni og undir henni og svæðið verður girt af.

Við hvetjum íbúa, gesti og aðra sem eiga leið um svæðið til að kynna sér aðkomuáætlunina.