Sprengingar í grunni Fannborgarreits

Tilkynning til íbúa / fyrirtækja vegna sprenginga í nágrenninu

Áætlað er að hefja vinnu við borun í grunni Fannborgarreits 16.11. og sprengingar 19.11. Áætlað er að þessi vinna taki 3-4 mánuði, það fer þó eftir eðli bergsins hversu vel gengur. Reikna má með að sprengt verði 4 - 6 sinnum á dag. Unnið verður frá 7:30 – 18:30 alla virka daga.

Sprengingar verða frá 8:30 til 17:30 á daginn alla virka daga.

Þann 19.11. byrja sprengingar óreglulega því við verðum að gera prufuskot og þær verða óreglulega fyrstu vikuna en eftir það ættu sprengingar að vera reglulega yfir daginn ca. 4-6.

Það sem getur haft áhrif á vinnuna er veður ef það er slæmt veður verða einhverjar tafir og þá færri sprengingar yfir daginn eins ef upp koma bilanir eða önnur tilvik.

Til viðvörunar um að sprenging sé væntanleg koma þrjú stutt hljóðmerki og svo líður ca. 1 mínúta þar til við hleypum af skotinu. Svo þegar sprengingu er lokið kemur eitt langt hljóðmerki.

Niðurstöður mælinga verða birtar daglega inn á vefum fannborg.is og midbaer.kopavogur.is

Allar tilkynningar