Tilkynning til íbúa

Tilkynning til íbúa / fyrirtækja vegna sprenginga í nágrenninu


Áætlað er að hefja vinnu við borun í grunni Fannborgarreits 16.11. og sprengingar 19.11. Áætlað er að þessi vinna taki 3-4 mánuði, það fer þó eftir eðli bergsins hversu vel gengur. Reikna má með að sprengt verði 4 - 6 sinnum á dag. Unnið verður frá 7:30 – 18:30 alla virka daga.

Framkvæmd sprenginga mun verða í höndum Óskataks ehf. og Blast ehf.

Öll sprengiskotin verða byrgð með tvöföldu lagi af sprengimottum til að koma í veg fyrir grjótkast. Titringsmælar verða staðsettir á og við nærliggjandi hús til að geta fylgst vel með öllum titringi sem af sprengingunum verða og til að halda titringi innan við áætluð mörk og reglugerðir.

Til viðvörunar um að sprenging sé væntanleg koma þrjú stutt hljóðmerki og svo líður ca 1 mínúta þar til við hleypum af skotinu. Svo þegar sprengingu er lokið kemur eitt langt hljóðmerki.

Niðurstöður mælinga verða birtar daglega inn á vefum fannborg.is og midbaer.kopavogur.is

Þeir sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni af völdum sprenginganna geta haft samband við Óskatak verktaka sprenginga eða Mannverk aðalverktaka.

Við vonumst til að þið verðið fyrir sem allra minnstum óþægindum af völdum sprenginganna. Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar er velkomið að hafa samband við okkur í tölvupósti: oskar@oskatak.is eða erlendur@mannverk.is


Ef þið hafið athugasemdir vegna þessarar vinnu geti þið haft samband við:

· Vinnueftirlit ríkisins S: 550-4600

· Lögreglan S: 444-1000

Allar tilkynningar