B
Færsla á girðingu
Framkvæmdum á Fannborgarreit miðar áfram. Unnið er að því að ljúka færslu og tengingu lagna og er sú vinna að klárast. Jafnframt er unnið að því að fjarlægja jarðveg ofan af klöpp.
Girðing framkvæmdasvæðisins verður færð lengra til norðurs 12. nóvember og verður eins og blá línan á meðfylgjandi mynd. Við það lokast bílastæðin við Hamraborg 10 en Kópavogsbær er að skoða aðgerðir til að halda bílastæðum þar.
Olís mun fjarlægja tanka sem eru nálægt Hamraborg 10 en endanleg dagsetning þeirrar vinnu liggur ekki fyrir.
Gönguleið um svæðið kann einnig að lokast tímabundið á meðan tankarnir eru fjarlægðir.


