Framkvæmdir á næstunni

Vegna framkvæmda á Fannborgarreit þá verður eitthvað fleygað klöpp í stuttan tíma í senn. Ekki er alltaf hægt að sjá fyrir hvenær þörf verður á fleygun, en búast má við henni öðru hvoru næstu vikurnar.

 

Fleygun fer fram í stuttum lotum á milli kl. 7:30 og 18:00 á virkum dögum. Vinnan er innan þeirra marka sem gilda um sérlega háværar framkvæmdir.

 

Áður en mokstur og borun fyrir sprengingum getur hafist þarf að ljúka færslu og tengingu lagna á framkvæmdasvæðinu. Unnið verður við tengingu frárennslis í þessari viku og gert er ráð fyrir að rafmagnsstrengir og ljósleiðari verði tengdir í lok vikunnar. Að því loknu getur mokstur á lausum jarðvegi og borun fyrir sprengingum hafist.

 

Sprengingar geta því hafist í fyrsta lagi eftir um tvær vikur. Gert er ráð fyrir að þær standi yfir í þrjá til fjóra mánuði í þessum framkvæmdarfasa. Nánari upplýsingar um tímasetningar verða birtar þegar þær liggja fyrir.

Framkvæmdasvæði
Framkvæmdasvæði

Stækka mynd →